Lagaleg skjöl · Útgáfa 1.1
Skilmálar
Með því að nota vefinn samþykkir þú eftirfarandi skilmála. Þeir gilda um öll lén (runur.is, orðið.is og ordid.is) og allar tengdar þjónustur.
Síðast uppfært: 28. júní 2026
1. Almenn ákvæði og gildissvið
Skilmálar þessir gilda um alla notkun, aðgang og skráningu á vefsvæðinu Runur.is og tengdum lénum. Vefurinn er í eigu og rekinn af Herrabyte ehf. („Runur", „Vefurinn", „við" eða „okkar"). Með því að opna, skrá þig inn á eða nýta þér þjónustu á vefnum samþykkir þú að vera bundinn af þessum skilmálum að öllu leyti. Ef þú ert ósammála skilmálunum ber þér að hætta notkun.
2. Þjónustulýsing
Runur.is er íslenskt þrautasafn sem býður upp á daglegar og endurspilanlegar þrautir. Með áskrift á Runur færðu aðgang að öllum leikjum, liðnum dögum, spila með vinum og ítarlegri tölfræði. Með fríum notanda færðu aðgang að fjórum vel völdum leikjum í hverri viku auk fjölda endurspilanlegra leikja. Fleiri leikir geta bæst við án fyrirvara. Þjónustan felur einnig í sér:
- Stigakerfi fyrir stigahæfa leiki.
- Stigatöflur: Ísland (allir spilarar), vinir og hópar.
- Vina- og hópaaðgerðir, boð og samanburð innan hóps.
- Geymslu leikjasögu fyrir innskráða notendur (Supabase).
3. Hugverkaréttindi
Runur gerir ekkert tilkall til eignarréttar á alþjóðlegum hugmyndum um leiki (t.d. Sudoku, Wordle eða Contexto). Hins vegar eru öll sérhönnun og birtingarmynd á Runur.is — þ.m.t. en ekki takmarkað við forritunarkóði, grafík, íslensk orðaforðalisti, vörumerki, viðmót og höfundarleg verk — alfarið eign Herrabyte ehf. og varin íslenskum höfundarréttarlögum og alþjóðlegum hugverkasáttmálum. Þér er óheimilt að:
- Fjölfalda, endurbirta eða miðla efni, forritakóða, þrautum eða leikjum af Runur.is — í heild eða að hluta — án skriflegs samþykkis Herrabyte ehf.
- Afsala, bakþýða eða sundurgreina (e. reverse engineer) hugbúnað vefsins, eða reyna á nokkurn hátt að draga út frumkóða, gagnagrunn eða innri uppbyggingu kerfisins.
- Beita sjálfvirkum tólum, vélmennum eða skröpurum til að vinna úr eða safna gögnum af vefnum, þ.m.t. beinar fyrirspurnir á forritaviðmót (API) til að komast yfir svör þrauta.
- Þróa samkeppnisvörur, eftirlíkingar eða afleidd verk sem styðjast við hugverk, gögn eða hönnun Runur.
4. Notendaaðgangur
Þú mátt skrá þig með netfangi og lykilorði eða með Google- eða Facebook-reikningi. Við kröfur gerum til aðgangsins:
- Lykilorð: að lágmarki 8 stafir.
- Birtingarnafn: 3–30 stafir, eitt orð án bila. Birtingarnöfn verða að vera einstök meðal allra notenda og mega ekki innihalda orð sem teljast móðgandi eða óviðurkvæmileg samkvæmt innri lista okkar.
- Þú berð ábyrgð á að halda lykilorði þínu leyndu og á öllum aðgerðum sem eiga sér stað undir þínum aðgangi. Verðir þú var við óheimilan aðgang skaltu tafarlaust tilkynna það á hallo@runur.is.
- Runur áskilur sér rétt til að frysta, loka eða eyða aðgangi vegna brota á þessum skilmálum, einkum vegna svindls, misnotkunar, móðgandi birtingarnafna eða margfaldra aðganga (e. alt accounts) sem notaðir eru til að blekkja stigatöflur eða komast fram hjá prufutímabili.
5. Heiðarleiki (Fair Play) og bann við svindli
Tilgangur Runur er sanngjörn keppni. Svindl eða tilraun til svindls getur leitt til tafarlauss og varanlegs banns, auk þess sem áunnin stig og stöður á stigatöflum verða hreinsuð. Óheimilt er að:
- Skoða eða hlera netsamskipti (e. network traffic) á milli vafra og þjóns til að afhjúpa svör eða leyndarmál þrauta.
- Nýta utanaðkomandi aðstoð — hvort sem um er að ræða annað fólk, forritasjálfvirknivæðingu eða gervigreindartól — til að leysa þrautir í þínu nafni.
- Skrá fleiri en einn aðgang (e. alt accounts) í þeim tilgangi að endurtaka daglegar þrautir, hækka stöðu á stigatöflum eða nýta prufutímabil aftur.
- Hagnýta sér þekkta eða óþekkta galla í hugbúnaðinum; slíkt ber að tilkynna án tafar á hallo@runur.is.
6. Notendaframlag og samskipti innan hópa
Þegar þú stofnar hóp, býður vini eða velur birtingarnafn eða hópnafn skuldbindurðu þig til að nota efni sem er löglegt og ekki móðgandi. Nöfn hópa og notenda eru sjálfvirkt sannprófuð gegn lista yfir bönnuð orð og geta orðið fjarlægð af okkur án fyrirvara. Runur áskilur sér rétt til að eyða hópum þar sem efni eða nafn brýtur gegn þessum skilmálum.
7. Áskriftir og greiðslur
Hluti af þjónustu Runur er ókeypis (t.d. Flísaspil, Myndagáta, 2048). Aðrir leikir og viðbótareiginleikar krefjast virkrar áskriftar.
- Greiðslumiðlun: Öll kortafærslur og utanumhald greiðslukorta fer fram hjá Kling ehf. (kling.is). Runur geymir engar greiðslukortaupplýsingar.
- Áskriftarleiðir:
- Mánaðaráskrift — 600 kr./mán., með 3 daga ókeypis prufutímabili fyrir nýja notendur.
- Ársáskrift — föst árleg greiðsla, með afslætti m.v. mánaðaráskrift.
- Sjálfvirk endurnýjun: Áskrift heldur gildi sínu og er innheimt á ný í upphafi hvers tímabils nema notandi hætti áður.
- Uppsögn: Hægt er að segja upp áskrift hvenær sem er í gegnum greiðslugátt Kling, sem opnast frá stillingum aðgangs eða frá áskriftarsíðunni. Þegar áskrift er felld niður heldur þú fullum aðgangi til loka þess tímabils sem þegar hefur verið greitt fyrir — þar með talið ef prufutímabil er enn virkt.
- Prufutímabil: Ókeypis prufutímabil er aðeins í boði fyrir nýja notendur. Nýting margfaldra aðganga til þess að endurnýta prufutímabil er brot á þessum skilmálum, og kerfið takmarkar sjálfvirkt nýskráningar sem virðast nýta sér galla.
- Endurgreiðslur: Vegna eðlis stafrænnar þjónustu eru öll kaup endanleg, nema íslensk lög í búsetulandi þínu krefjist annars. Ef þú notar vefinn strax eftir kaup fellur 14 daga afturköllunarréttur ESB-neytenda niður. Ef upp koma tæknilegir hnökrar má í sumum tilvikum biðja um endurgreiðslu með því að hafa samband við okkur.
- Verðbreytingar: Við megum breyta verðskrá framvegis. Breytingar taka aðeins gildi fyrir framtíðartímabil og verða tilkynntar með a.m.k. 14 daga fyrirvara.
Almennir skilmálar fyrir kortagreiðslur
Þessir skilmálar gilda um kortagreiðslur í gegnum vefinn. Með því að merkja við samþykkisreitinn staðfestir þú að þú hafir lesið og samþykkir skilmálana.
8. Takmörkun ábyrgðar
Þjónusta Runur er boðin í núverandi mynd án loforða um fullkomnun eða sérstaklega tryggða tiltækni (e. no warranty of fitness). Að svo miklu leyti sem gildandi lög leyfa hafnar Runur öllum beinum eða óbeinum ábyrgðum. Við ábyrgjumst ekki að:
- Þjónustan verði stöðug, villulaus eða ávallt tiltæk.
- Upplýsingar eða tölfræði (stig, leikjasaga) muni aldrei glatast eða spillast vegna galla í innviðum, Supabase, Kling eða öðrum þriðja aðila.
- Vefurinn sé algjörlega öruggur fyrir netárásum þótt við beitum bestu fáanlegu vörnum.
Skaðabótatakmörkun: Runur, eigendur þess, stjórnendur eða starfsmenn skulu undir engum kringumstæðum bera beina eða óbeina skaðabótaábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af notkun vefsins eða getuleysi til að nota hann. Telji dómstóll þessa takmörkun ógilda skal hámarksbótaskylda Runur aldrei nema hærri fjárhæð en þú hefur í raun innt af hendi til Runur á næstliðnu tólf (12) mánaða tímabili.
9. Skaðleysi (Indemnification)
Þú samþykkir, með notkun þinni á vefnum og samþykki þessara skilmála, að bera ábyrgð gagnvart Runur.is, Herrabyte ehf. og samstarfsaðilum þeirra — þar á meðal Kling.is og Supabase — á hvers konar kröfum, skaða eða kostnaði sem stafar af: brotum þínum á þessum skilmálum, misnotkun á þjónustunni eða aðgerðum sem brjóta á réttindum annarra.
10. Framboð þjónustu og breytingar
Runur áskilur sér rétt til að bæta við leikjum, fjarlægja eldri eiginleika, flytja fría leiki bak við greiðsluvegg eða loka þjónustunni varanlega með sanngjörnum fyrirvara.
11. Persónuvernd
Vinnsla persónuupplýsinga er ítarlega útlistuð í persónuverndarstefnu okkar. Samþykki þitt á skilmálum þessum felur jafnframt í sér að þú hafir kynnt þér þá stefnu.
12. Lög og lögsaga
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Rísi ágreiningur skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra á Íslandi.
13. Breytingar á skilmálum
Við áskiljum okkur rétt til að endurskoða skilmálana hvenær sem er. Nýjasta útgáfa er ávallt aðgengileg hér. Veigamiklar breytingar verða tilkynntar með tölvupósti eða skilaboðum í vafra a.m.k. 14 dögum áður en þær taka gildi. Áframhaldandi notkun eftir gildistöku telst samþykki við nýju skilmálana.
Herrabyte ehf. · kt. [460422-1400] · Ísland
Netfang: hallo@runur.is